Icelandair Group er leiðandi í flugrekstri á Íslandi. Kjarnastarfsemi fyrirtækisins og viðskiptalíkan þess byggja á leiðakerfi félagsins sem nýtir einstaka staðsetningu Íslands í Norður-Atlantshafinu og tengir Evrópu og Norður-Ameríku í gegnum Ísland. Þannig býður Icelandair öflugar tengingar til, frá, um og innan Íslands. Icelandair Group rekur jafnframt þrjú dótturfélög sem styðja við kjarnastarfsemi félagsins. Icelandair Cargo er fraktflutningafyrirtæki sem skipuleggur vöruflutninga um heiminn bæði með farþegaflugi og sérstöku fraktflugi, en mikil samlegðaráhrif eru af því að geta flutt vörur um umfangsmikið leiðakerfi Icelandair í farþegaflugi. Loftleiðir Icelandic leigir út flugvélar til ýmissa verkefna og veitir ráðgjöf til fyrirtækja í flugiðnaði. Ferðaskrifstofan VITA skipuleggur flug og ferðir til fjölda áfangastaða með áherslu á sumar- og vetrarleyfisferðir fyrir Íslendinga. Icelandair Group er skráð á Nasdaq Iceland.
Með þjóðinni í yfir 80 ár
Icelandair á rætur að rekja til ársins 1937 þegar stofnað var flugfélag á Norðurlandi, að nafni Flugfélag Akureyrar. Árið 1940 færði félagið höfuðstöðvar sínar til Reykjavíkur og breytti nafni sínu í Flugfélag Íslands, sem tók síðar upp alþjóðlega nafnið Icelandair. Árið 1973 sameinuðust Flugfélag Íslands og Loftleiðir og Flugleiðir var stofnað. Í október 1979 tók Flugleiðir við öllum rekstri tveggja fyrirrennara sinna og Icelandair nafnið var tekið upp á alþjóðlegum vettvangi en Flugleiðir var notað áfram á íslenskum markaði. Í dag gengur flugfélagið undir nafninu Icelandair, bæði hér heima og erlendis.
Icelandair er meðlimur í helstu alþjóðlegu flugrekstrarsamtökum
IATA (International Air Transport Association) síðan 1950
AEA (Association of European Airlines) síðan 1957
FSF (Flight Safety Foundation) síðan 1966.
Heilsársáfangastaðurinn Ísland
Þar sem Ísland er eyþjóð í miðju Norður-Atlantshafi, reiða Íslendingar sig á öflugar og skilvirkar flugsamgöngur. Þær eru mikilvægar til þess að tengjast heiminum og viðhalda lífsgæðum á landinu.
Icelandair Group hefur tekið virkan þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi og að gera Ísland að heilsársáfangastað fyrir ferðamenn. Vöxtur leiðakerfis félagsins hefur sett Ísland í lykilstöðu sem miðstöð fyrir flugtengingar milli Evrópu og Norður-Ameríku. Á sama tíma hefur félagið byggt upp öfluga vöruflutningaþjónustu sem hefur skapað nýja möguleika fyrir útflutningsgreinar á Íslandi og eflt til muna innflutning til landsins.
Vöxtur ferðaþjónustunnar á Íslandi var mjög hraður á árunum 2011-2019 og skapaði 39% útflutningstekna þjóðarinnar árið 2019 og um 14% starfa á Íslandi. Á þessum tíma fjórfaldaðist fjöldi ferðamanna til Íslands og ferðaþjónusta varð að öflugri atvinnugrein sem í dag skiptir miklu máli fyrir íslenskan efnahag.
Árið 2019 kynnti Icelandair nýja stefnu þar sem aukin áhersla var lögð á kjarnastarfsemi félagsins, flugstarfsemi. Í takt við nýja stefnu voru bæði hótelrekstur Icelandair Hotels og ferðaskrifstofan Iceland Travel seld út úr félaginu á árunum 2019-2021.
Víðtæk áhrif heimsfaraldurs
Árið 2020 byrjaði vel og áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir að farþegafjöldi yrði svipaður og árið 2019 eða um 4,2 milljónir farþega og flogið yrði til 24 áfangastaða í Evrópu og 19 í Norður-Ameríku. Í mars skall hins vegar COVID-19 heimsfaraldurinn á og voru áhrifin gífurleg. Flest lönd settu á miklar ferðatakmarkanir í mars 2020 sem gerði flugfélögum nánast ómögulegt að halda áfram eðlilegri starfsemi. Á sama tíma varpaði faraldurinn ljósi á mikilvægi flugstarfsemi í heiminum. Flugfélög héldu uppi nauðsynlegum tengingum og sinntu mikilvægu hlutverki við að flytja fólk og vörur á milli landa.
Flugiðnaðurinn hefur í áranna rás lent í áskorunum sem hafa tímabundið minnkað eftirspurn. Þó má segja að heimsfaraldur COVID-19 sé erfiðasta áfallið sem dunið hefur á flugi og ferðaþjónustu í heiminum. Ferðatakmarkanir sem settar voru á til þess að hamla dreifingu veirunnar hafa haft umtalsverð áhrif á starfsemi fyrirtækja í flugrekstri og er Icelandair Group ekki undanskilið. Starfsemi félagsins var á skömmum tíma dregin saman og samtímis ráðist í umfangsmikla fjárhagslega endurskipulagningu sem lauk með vel heppnuðu hlutafjárútboði. Starfsfólk var einnig úrræðagott og kom auga á ný tækifæri á tímabilinu, til dæmis í frakt- og leiguflugi. Þannig réðst félagið í fjölbreytt og krefjandi verkefni, til dæmis við að flytja lækningavörur frá Kína til Evrópu og Bandaríkjanna. Þá skipulagði félagið leiguflug um allan heim í því skyni að flytja ríkisborgara ýmissa landa til síns heima.
Vaxtartækifæri
Styrkur félagsins í gegnum heimsfaraldurinn og vaxtartækifæri eftir hann byggjast fyrst og fremst á sterku og góðu viðskiptalíkani, sveigjanlegu leiðakerfi, öflugum flota flugvéla af mismunandi stærðum, góðri fjárhagsstöðu og reynslumiklum hópi starfsfólks. Þetta hefur gert félaginu kleift að halda lykilinnviðum sínum á meðan starfsemi var í lágmarki til þess að vera viðbúin að hefja flugið á ný um leið og markaðir opnuðust.
Framkvæmdastjórn og stjórn
Í framkvæmdastjórn Icelandair Group sitja forstjóri og framkvæmdastjórar sjö sviða.
Bogi Nils Bogason er forstjóri félagsins. Framkvæmdastjórar eru Ívar S. Kristinsson framkvæmda-stjóri fjármála, Birna Ósk Einarsdóttir framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs, Jens Þórðarson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Tómas Ingason framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og staf-rænnar tækni, Elísabet Helgadóttir framkvæmdastjóri mannauðs, Gunnar Már Sigurfinnsson framkvæmdastjóri Icelandair Cargo og Árni Hermannsson framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic. Guðmundur Hafsteinsson er stjórnarformaður Icelandair Group. Aðrir stjórnarmenn eru Nina Jonsson, John F. Thomas, Matthew Evans og Svafa Grönfeldt.
Vinnustaðurinn
Icelandair er fjölbreyttur og framsýnn vinnustaður. Hjá félaginu starfar fólk með ólíkan bakgrunn við margbreytileg störf, í vinnuumhverfi sem einkennist af samvinnu og stöðugri þróun. Félagið leggur áherslu á gott vinnuumhverfi og góða upplýsingagjöf sem stuðlar að frumkvæði og árangri starfsfólks. Þá er leitast við að efla faglega þróun svo starfsfólk fái tækifæri til að vaxa í starfi. Hjá Icelandair er lögð áhersla á að starfsfólk félagsins njóti jafnréttis og að fjölbreytileiki sé virtur og er það hluti af mannauðsstefnu félagsins. Þannig er best tryggt að sá mannauður sem félagið hefur yfir að ráða, sem m.a. felst í menntun, reynslu, færni og lífsviðhorfi starfsmanna, nýtist því best til framtíðar. Þessi áhersla á að starfsfólk njóti jafnra tækifæra er hluti af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun fyrirtækisins sem hefur verið samþykkt af stjórn. Hlutföll kvenna og karla sem vinna hjá fyrirtækinu eru nánast jöfn. Fyrirtækið hlaut jafnlaunavottun í byrjun árs 2019.
Samfélagsábyrgð
Sjálfbærni er mikilvægur þáttur í stefnu Icelandair Group. Félagið hefur ákveðið að leggja fjögur Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til grundvallar í stefnu sinni í samfélagsábyrgð en Heimsmarkmiðin hafa markað sér sess sem sameiginlegt tungumál stjórnvalda og atvinnulífs til þess að stuðla í sameiningu að sjálfbærri framtíð.
Fjórar megináherslur félagsins á sviði samfélagsábyrgðar:
Félagið hefur sett sér mælanleg markmið og markvissa aðgerðaráætlun á þessum sviðum og þannig skuldbundið sig til að gera það sem þarf til að ná árangri.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd